BLogga dauðans
Jæja fína fólk. Hér er komið blogg. Kristín Salín var farin að örvænta haha!Nú sit ég hér og er að horfa á mynd á stöð eitt. Ekki það að það sé ekki neitt annað að gera held ég. Það er bara leti sem hrjáir mig, letin er líka ástæðan fyrir áhorfi mínu á stöð 1, fjarstýringin er batteríslaus og ekki nenni ég að standa upp haha!!
Sjónvarpið er reyndar svo nálægt að maður gæti liggur við teigt sig. En ekki nenni ég því. Þó að sjónvarpið sé svona nálægt þarf maður liggur við að nota stækkunargler til að horfa á það, svo lítið er það.
ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER BARA ÁSTAND Á MANNI.
Núna gengur lífið bara sinn vanagang.
Maður mætir myglaðri en allt í skólan því það er farið að koma skuggalega oft fyrir að maður snúsi til korter yfir. Mér finnst þetta alveg ágætt fyrirkomulag, reyndar sjónmengun fyrir samnemendur mína!!
Hún bjarney litla Sörensen bauð mér í mat um daginn! Já það er sko ekkert minna skal ég ykkur segja. Ég mætti gallvösk á gammósíunum, nýkomin úr fjallinu. Bjarney fannst það töff og er planið að halda gammósíupartý allavega einu sinni í mánuði!
Já það má með sanni segja að ég eigi mér líf! Sigríður nokkur móðir mín kom inní herbergi rétt í þessu og tók mynd af mér í þeirri stellingu sem ég hef verið föst í síðustu klukkutíma. Í rúminu með tölvuna á lærunum. Sannkölluð heimildarmynd sem lýsir mér í einu og öllu!!!:
Já það má segja að ég hafi slegið persónulegt met í þessum mánuði!
ÉG FÓR AFTUR UPP Í EGILSSTAÐI ÁÐAN. Komin tvö skipti í þessum mánuði. Hvert er heimurinn að fara? Já nú þarf ég að fara að taka á mínum málum takk fyrir takktakktakk!
Gaman að segja frá því að í þessari Egilsstaðaferð var farið í Sentró. Þar voru BARA norðfirðingar... eins og Iðunn Pála orðaði það: “verslum í heimabyggð”:S Hehe skandall.
Svo að ég haldi áfram frásögn úr þessari “kaupstaðaferð” þá fórum við Lotte den flotte í Samkaup í “stærsta nammibar á austurlandi. Þar var keypt nammi fyrir aragrúa af peningum, eins og ég segi, maður verður að vera duglegur að halda bumbunni og hliðarspikinu við!!!!! Annað gengur ekki!
En jæja, þar sem að enginn hefur náð að lesa hingað alveg niður (skil það vel því bloggið var ekki um neitt) þá ætla ég ekki að neyða fólk til að kvitta (ef það er eitthvað fólk). Gaman væri samt ef þið létuð vita af ykkur! MEÐ KVEÐJU, JÓNÍNA HARPA P.s Nýjar myndir í albúmi!!!
27. janúar 2007 klukkan 03:21
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
