Síðustudagarnir hérna í bili...
Jááá... Bara komin í sumarfrí og búin að pakka öllu niður hérna á vistinni og ready til að bruna heim í fjörðinn fagra...Gaman að segja frá því að ég tók þátt í hrekk í vikunni hérna á vistinni. Simmi húsvörður fékk mig í þetta......Í stuttu máli þá var ég sett í hvítann ræningjagalla með hettu þannig að ég þekktist ekki um miðjann dag og "stal" tölvutösku sem að stóð á borðinu í lobbyinu, auðvitað allt fullt af eftirlitsmyndavélum og svona..... Eigandinn geymir hana nefninlega þarna því að það er svo öruggt út af myndavélunum.
Síðan var eigandinn látinn sjá "þjófinn" á upptöku og furða sig á þessu (Þetta átti auðvitað að vera í alvörunni).... Æji þetta var allt saman svolítið skondið en samt meinlaus djókur og það er enginn súr eftir á
En annars ætla ég að koma með nokkrar myndir frá síðustu dögum....

Við Valla skelltum okkur í Sjallann á Palla ásamt fleirum......

Benjamín búinn að dressa sig..... Enda er maður að heyra ýmsar sögur af kvennafari þetta kvöld, að sumar hafi hreinlega ekki haldið vatni þetta kvöld úú...

Ég og Inga Þórey blönduðum drykk sem að leit út eins og tjahh... æji ég veit það ekki, allavega þvílíkt óbjóðslegur...... Eeeen bragðgóður

Völlu leyst ekkert á þetta....
Síðan eru það sýnishorn frá gærdeginum...... En ég tók mynd af draslinu þegar ég var að pakka og hljóp síðan hring á 1 mín og smellti nokkrum af...:

Mmm

Í hina áttina....

Slinga og Petrína á leið í nammileiðangur....

Íris og Íris....;)

Vopnfirðingarnir nágrannar mínir

Hafdís og Valgerður:)
Æjjjjjjjjji ég á nú bara eftir að sakna allra:/
Jæja.... Þetta er orðið nóg í bili.... Síðan er það bara frystihúsið á mánudaginn og (8)stanslaust stuð að eilífuuuuu(8) Jeeeee(8)
-Jónína Harpa:)
12. maí 2006 klukkan 14:44
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

Kemur akkurat á réttum tíma, það var að byrja að snjóa.....;/