Gammósíur
Gammósíur eru alveg ótrúlega góðar!! Móðir splæsti á mig einum slíkum um daginn fyrir skíðin.Nú er ég nýkomin af skíðum, sit hér svalari en allt í gammó, ótrúlega háum sokkum og míkróflíspeysu frá sextíuogsex. TÖFF TÖFF TÖFF.
Síðasta vika er búin að vera brjálæði, skóli til hálf fimm, brunað heim, í skíðafötin og komin upp á skarð fyrir kl.17! Þá er æfing til 19 og komin heim um hálf átta.
Á þessu tímabili dags er ég mjög geðgóð eða þannig vegna þreytu og bitnar það á heimalærdómi og fólki sem ég umgengst. Gaman fyrir það!
Þetta lagast nú þar sem að ég og Jói Tryggva skiptum þessu á milli í næstu viku held ég;)
Þetta var tilgangslausasta blogg ever, hélt að bloggandinn væri kominn yfir mig en hann hefur eitthvað dottið niður aftur.
Við hittumst hress.
Kv. Jó9
13. janúar 2007 klukkan 21:55
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
