Sumarfrí á morgun?
..... Já það held ég nú! Fór í heilbrigðisfræðipróf í morges sem að ég massaði gjörsamlega jájájá, drullulétt próf hér á ferðinni.Á morgun eru það tvö próf, íþr og líf og síðan bara fínídó og allir hressir.
Þessi lífeðlisfræði er alveg að gera út af við mann, meira ruglið! Á ég að gefa ykkur innsýn í þetta?
"THS-stýrihormón skjaldkirtils stjórnar því hversu mikið þýroxín skjaldkirtillinn framleiðir."
Jájájá, meiri ósköpin sem þetta er nú fræðandi seisei. Maður varla ræður ekki við gáfurnar eftir að hafa rennt yfir þessar glósur.
Það gæti verið að ég haldi í fjörðinn fagra á morgun.... Annars bara á fimmtudaginn..... Já eða föstudaginn! Ef að ég fer á föstudaginn mun ég þá hugsanlega fara til Ólafsfjarðar á morgun með henni Kamillu, eða eins og ég vil kalla hana, Vindmillu. (Jájá ég veit að það er Y í orðinu mylla, en það skemmir bara djókið svo já).
En ef að það verður af þessu ætlum við að fara á Kajak okkur til skemmtunar.... Jááá nett svalar gellur þarna á ferðinni.
Veit að þetta var ekkert blogg dauðans hérna en þetta var þó eitthvað.... Sjáumst í frystihúsinu eða einhversstaðar...... Sælarrrrrrrr...
-Jóiiii
10. maí 2006 klukkan 03:39
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir

Bjarnastaðabeljurnar, þær baula mikið núna. Þær eru að verða vitlausar það vantar eina kúna. Það gerir ekkert til, það gerir ekkert til. Hún skrapp bara á klósettið!
Já er að eyða tímanum. Sem gengur ekki!!
Er með þetta líka yndislega eurovision lag á heilanum sem var spilað í frönskutíma í haust! J´aime j´aime la vie! Urrr þetta er meira leiðinda lagið.
Vertu bless og gangi þér vel í prófinu gullið mitt:*