Jóla jóla jóla Jónína
Hóhóhó. Ég er komin í jólafrí:)Á föstudaginn klukkan 14:54 að staðartíma Akureyri Iceland byrjaði jólafríið mitt:)
Ég fór á jólahlaðborð með Andra og vinnunni hans í gærkveldi og var mjög fínt:) Það var bara kjóll og jakkaföt. Að sjálfsögðu var skellt sér í há skó við þetta tækifæri... En hvað en hvað... Helduru að min hafi ekki bara vaknað með harðsperrur í morgun, hugsanlega eftir skóna, og það í rassinum!! GELLAN!!
Dagurinn í dag fer svo bara í það að pakka og snúast heilann helling því fyrirhugað er að fara heim á morgun í fallegasta fjörðinn á landinu:) Það verður nú gaman.
Bloggstuðið er í algjöru lágmarki þessa dagana þið verðið bara að afsaka...
Sjáumst hress:)
KV, JÓnína.
10. desember 2006 klukkan 20:13
Jónína Harpa Njálsdóttir
Jónína Harpa Njálsdóttir
