Blessuð prófin
Jæja maður ákvað að drattast í eina bloggfærslu eða svo.... Hér færðu þetta mamma mín.![]()
En já, það er allt gott að frétta, prófin komin á milljón og svona... Búin með íslensku og síðan er það dansk i morgen;) Eftir það eru síðan BARA eftir stærðfræði, enska, heilbrigðisfræði, íþróttir og lífeðlisfræði....
Gaman að segja frá því að ég eignaðist litla systur í fyrradag
Hún er algjört æði, langaði ekki að sleppa henni þegar ég fór og kíkti á krílið.... Hér er mynd af okkur systrum....... Svipur með okkur eða hvað![]()

Annars veit ég ekki hvað ég á að segja.... Hefur ekki gerst mikið meira síðustu daga vegna prófanna.....
Það helsta sem hefur gerst síðustu daga var í dag þegar hann Benjamín nokkur félagi minn náði að segja mér 4 sögur af ÖMMU SINNI í einum kaffitíma.... Já það er ekki á hverjum degi sem að maður fær að heyra sögur af henni Lillu Páls
Hahahhahahaa.....
En jæja... Slinga er að fara að klippa á mér toppinn þannig að ekki láta ykkur bregða ef að ég verð snoðuð næst þegar ég hitti ykkur, stelpan gæti farið hamförum með skærin....... NEEEEEEEEI djók, þetta verður magnað;)
En heyrðu Vi ses og óskið mér góðs gengis í geggjuðu prófunum;)
Jónína Harpa Njálsdóttir

nett blogg :P