Mig langar svo að koma með eitt hérna:) Þegar ég var í VMA var ég með honum Hinrik FÉLAGA í dönskutímum alltaf.... Hann bara var algerlega lost í þessu og hafði enga trú á sjálfum sér:) Ég tók hann undir minn verndarvæng og við hjálpuðumst að í gegnum þetta og endurðum að sjálfsögðu áfangana með stæl. Hann á líka alveg ógó sæta kærustu sem heitir María og er hvaa... hálfur dani og þau eru bara krúttleg:) Ég er orðin svo gríðarlega tæknivædd að ég fékk mér facebook um daginn og þar var ég "tagged" með þessar mynd:
Ég hinrik og María í göngu í útivistaráfanga VMA.... Djöfulsins snilld sem þetta var hahaha:) Þriðjahjólið.is eða haha? Við María grilluðum kjúllabringurnar þangað til að þær urðu að öskuhrúgu vegna þess að við vorum svo hræddar um að fá salmonellu hahahaha!
Núna eru þau flutt til DANMERKUR og eru að standa sig ekkert smá vel! Var að lesa bloggið þeirra hér: www.mariamaria.bloggar.is
Hehe ég fékk bara svo rosalega mikla söknunartilfinningu þegar ég las bloggið og sá þessa mynd að ég verð bara að blogga eitt væmnisblogG:)
SES;) -Jónína Harpa
24. október 2008 klukkan 12:12
Jónína Harpa Njálsdóttir 5 athugasemdir
JJJiiiminn! Það var lítið að gera í vinnunni í dag þannig ég fór að skoða gömul blogg. Fyrst er að nefna 8-sky... (www.blog.central.is/8-sky) HVAÐ VAR BETRA EN ÞETTA? Ég dett bara útí eitthvað væmniskast þegar ég skoða þetta.... Þetta var bara best!!! En hvað ég væri til í að verða bara busi aftur með nákvæmlega sama fólkinu hehe.... Nokkrar myndir frá hittingum: Heitar...
..heittheitt..
..tjahh eins og ég segi þá var þessi hattur frekar vinsæll!! Haha!!
Óþekkt
Alveg brennandi heitt
Og að sjálfsögðu bestu vinir aðal
Nammanamm
Síðan er það umræðan sem ég vona að sé ekki viðkvæmt að rifja upp, en þaðe r 25+ umræðu snilldin sem átti sér stað á blogginu hennar Lovísu einhverntíman....HAHAHA ég er búin að stija hérna í krampa þetta er bara fáránlegt og ógeðslega fyndið! Og vinkonu-bloggið sem Lovísa bloggaði eftir þetta er náttúrulega bara fallegt! Okei Jónína ekki fara að grenja úr væmni!!
En annars. Ég skellti mér til víkur reykjarins um síðustu helgi. Yndislega frænka mín hún Auður gaf mér flugfar sem hún þurfti ekki að nota... How sweet..
Gisti þar hjá skötuhjúunum Láka og Bjarney. Hitti einnig Lovísu og við gelluðumst eitthvað, gaman:):)
En talandi um að vera gella!!!!!!!! BWAHAHAHA Auður var líka í Rvk á sama tíma. Við mæltum okkur mót vegna þess að ég var eitthvað að lónerast haha! Hláturskast kom nú fyrir í þeim hittingi þar sem að þegar við hittum hvor aðra vorum við báðar í rosalegum skvísufötum, á hælum og læti.... sem er nú kannski ekki frásögufærandi nema að við erum ALDREI svo klæddar haha! Afhverju skellir maður sér í þetta þegar maður kemur svo til Rvk? Fyrir hverjum er maður að sýna sig og reyna að réttlæta það að maður sé nú smá pæja?? ÞAð er ekki eins og einhver þekki mann þarna... hahaha æji þetta er bara svo fyndið. Pottó ekki fyndið að lesa þetta samt æj þið vitið..
En jæja bara smá innskot í bloggheiminn.... lifið heil, bæ.
17. október 2008 klukkan 15:52
Jónína Harpa Njálsdóttir 7 athugasemdir
Ég fór í göngur í Breiðdalnum um dagin.... djöfull var það gaman! Alltaf jafn skerí samt hvað þessar kindur GLÁPA alltaf í augun á manni!!!!
Doppa er hjá okkur núna og það er svo gaman:) Við gerum svo mikið þegar hún er hehe. Fórum t.d í gær út að labba í mííígandi rigningu uppí skórækt hehe... Hressandi.is. Komum síðan heim og bökuðum dýrindis pizzu:) Ég get svo svarið það... við fórum ALLTOF svöng í búðina í gær...þetta bara má ekki haha! Keyptum Bayonesskinku haha! Hátíðarmatur dauðans:) Bara gaman samt, ætlum að elda þetta í kvöld með brúnuðum kartöflum og sósu og eitthva mm... segjum til að bara að þetta sé til að ... fagna fyrstu snjókomunni hér niðrí bæ!? Já það er góð og gild ástæða hehe. Mmmm hlakka til:)
Jæja, er að stelast til að blogga í vinnunni, best að fara að koma einhverju í verk:)
-Jónína Harpa
P.S afhverju blogga ég bara um mat? Alltaf? Lýsir þetta sjálfri mér ekki bara of vel...:S
30. september 2008 klukkan 12:30
Jónína Harpa Njálsdóttir 6 athugasemdir
...hann sagði ekki meira þann daginn. Þessa setningu á afi hennar Lovísu. Jæja. Það er margt að gerast og mikið um breytingar framundan held ég barasta:(:(:( Gott og slæmt:) Stefnir allt í það að við förum úr íbúðinni um mánaðarmótin!!!Búhú... Við sem vorum orðin svo sátt og búin að koma okkur LOKSINS almeinilega fyrir. En svona er það að búa með tveimur fátækum námsmönnum.. neh segi svona:) Þá er það er bara heim til mömmu, ég og Birkir og taka síðan upp þráðinn aftur næsta haust þegar ég þykist ætla að skella mér í háskóla.
En annars gengur allt sinn vanagang. Bauð pabba og family í mat á mánudaginn... bara snilld, tróðum okkur 8 manns í litla eldhúsið, eldaði rétt sem heitir Stjarna Indlands Veeeeeeeeery gúd;) Það er nú alveg á hreinu að ég á sætustu systur í heimi... Veit bara ekki um meiri krútt hehe. Ég skelli inn myndum bráðum:)
Jæja bara smá rugl frá mér... Tjáá;)
18. september 2008 klukkan 14:09
Jónína Harpa Njálsdóttir 4 athugasemdir
Ég keypti ræktarkort fyrir 2 vikum og hef bara farið tvisvar... Gengur ekki! Í fyrra skiptið fór ég og hjólaði og labbaði og blabla, og lyfti síðan hendur. Dagurinn eftir var hræðilegur þar sem að ég gat ekki einu sinni lyft höndunum og sett í tagl!! Hahaha. Talandi um sjálfsblekkingu og halda bara maður sé massaðri en allt fyrsta daginn!
Í annað skiptið ákvað ég að lyfta fætur og fara mér rólega... En það var sama sagan. Það var frekar erfitt að setjast niður og þess háttar nokkra daga á eftir....
En jæja. Á þriðjudaginn var sko gaman:) Þá fóru ég, Birkir Rafn og þrír í viðbót í eitthvað sem upphaflega kallaðist "smá gönguferð"... Þessi litla og stutta gönguferð breyttist síðan bara í heljarinnar fjallgöngu! Löbbuðum uppá Lolla (fyrir ofan Grænanes) og síðan út með mestöllu fjallinu og niður aftur, á innan við 3 tímum, með pásum.... duglegheit:D Því miður var ég ekki með myndavélina... Arr! Þetta var mjög sérstakt og algjör snilld vegna þess að við lögðum ekki af stað fyrr en kl. 19:30 um kvöldið of það var komið niðamyrkur, þoka , rigning og vindur þegar við komum upp hehe! Gott aðv era vel klædd:D
Í gær var frekar strembinn dagur eins og á örugglega eftir að verða dálítið oft í vetur:) Það var skólinn að sjálfsögðu fyrir hádegi, vinna í Nesskóla síðan frá 12-16 og síðan sundlaugin frá 17-21 Stuðstuð! Þegar ég kom heim beið mín síðan rosaleg máltíð ala Birkir, Önd, piparsósa og brúnaðar kartöflur nammmminamm, myndarlegur.is
Þetta var bara lítið og le´ttleikandi innskot í bloggheimin, hittumst heil og eeeeekki vera feimin við að kvitta, enn og aftur:)
-Djónínas
04. september 2008 klukkan 13:48
Jónína Harpa Njálsdóttir 5 athugasemdir
01september
Jááá þar sem ég, virðulegur skólaritari nefndi í síðasta bloggi... Þá er ég komin í nýja vinnu, sem sagt skólaritari haha! Og það er nú ekki frásögufærandi (Bjarney, þú veist hvað ég er að fara), nema hvað, að mín er orðin sundlaugavörður líka! Og talandi um það, þá er maður námsmaður í ofanálag!!! Jáááá það er ekki talandi um duglegheitin HAAAAAAA.
En svona að öllu gamni slepptu þá gengur bara ansi vel að samtvinna þetta allt saman! Allir í Nesskóla voðalega nice, sundlaugin bara fín og skólin gengur alveg glimrandi... Bara gaman:)
Nú eru allir fluttir nema ég og Rósa..... búhú! Hvað er fólk að æða til Reykjavíkur? Fussum svei... Þetta þýðir bara klárlega að maður þarf að skella sér í borgarferð áður en langt um líður...!!
Ég, Bjarney(sem flytur btw á morgun:() og Rósa tókum gott kvöld hér á laugardaginn get ég sagt ykkur. Fyrst var það matur hjá Rósu, dýrlegur pastaréttur, alveg frábært:) Síðan lögðumst við á meltuna, allar þrjár saman í nýja stóra og flotta rúminu hennar Rósu:):) Við skelltum ævintýri gljúfrabúana í og lágum og hlustuðum alveg eins og í "gamla daga" þegar við vorum alltaf að leika á Hlíðargötunni!!:) Bara snilld. Eftir það var það ís og aðalbláber sem þarf nú ekkert að lýsa betur.... deeeeelicious!! Eftir ísinn fengum við þá snilldar hugmynd að bjalla í hana Svönu og tékka hvort að hún væri ekki til í smá tyrklands reunioun! Hún var að sjálfsögðu meira en til og héldum við þá heim til mín og "fengum okkur í pípu" (VATNSPÍPA allir... ekki panika!!)
Er ekki með myndirnar frá kvöldinu, þær lýsa stemningunni auðvitað best hehe!!!
Þetta var að sjálfsögðu bara snilld allt saman og ég vona að við náum að hafa eitthvað stuð í vetur þrátt fyrir að næstum allir séu fluttir.... beilerarnir ykkar
Bið að heilsa öllum, yfir og út, upp og niður...
-Joe-nine
01. september 2008 klukkan 15:26
Jónína Harpa Njálsdóttir 1 athugasemd
Já góðan og blessaðan daginn allir saman. Nú er sumarvinnunni minni í Alcoa lokið og mín bara komin í aðra! Ég er byrjuð sem skólaritari í Nesskóla og líkar bara ágætlega, er að komast inní allt og læra:) Ég verð að vinna hérna 50% með þesssum tveimur fögum sem ég á eftir í stúdentinn!
Margt er að frétta en ég held nú að það komist ekki allt fyrir í einu bloggi...
Við Birkir skelltum okkur í útilegu á Fiskidaginn Mikla á Dalvík um helgina og var það bara snilld:) Brunuðum af stað með hústjaldið hennar mömmu sem klikkar auðvitað aldrei:) Geggjað tjald! Þar hitti ég Völluna mína og fjölskylduna hennar sem er alltaf svo gaman og kósý að koma til:) Ég vona að ég nái að fara í fleiri útilegur í sumar...
Ég er svona að komast á það að ég fari bara aftur að þjálfa í vetur... Það er svo erfitt að sleppa þessum krökkum haha! Aaaaalgjörir gullmolar:)
Börker splæsti í svakalegan bíl um daginn sem að á að fara að krúsa á á næstunni, en fyrst ætlum við að mála hann og gera hann fínan:)
Þetta var bara smá innskot í bloggheiminn....... heyrumst fljótlega aftur lesendur góðir, munið að kvitta;)
Kveðja Jónína...
12. ágúst 2008 klukkan 11:20
Jónína Harpa Njálsdóttir 3 athugasemdir
Halló halló! Best að standa sig hérna;) Lífið gengur vel og bara sinn vanagang að ég myndi halda...! tók þrjár næturvaktir og ég verð að segja að það var alveg helvíti erfitt allavega svona seinnipartinn af síðustu vaktinni! Haha! Alveg var ég búin á því;) En þá tók við þriggja daga frí sem ég er að klára núna og bara eintóm gleði! Mamma, Jóhann og Sigurbergur eru komin heim frá Portúgal og mikið rosalega finnst mér það gott:) Mömmustelpan sem talar hér hehe:) Þau komu með myndavélina sem stelpan var að splæsa en það er alveg gífurlegt tryllitæki sem ég get ekki beðið eftir að fara að leika mér með ( Er að bíða eftir kortinu sem kemur á morgun). Núna á ég klárlega eftir að vera pirrandi manneskjan með myndavélina sem allir eiga eftir að verða brjálaðir á hehe. Hér sjáiði dýrðina:
Ég er svooo ánægð! En jæja, ég ætla að skella mér í sund með Írisi, ég bið ykkur vel að lifa og veriði sæl!
-Jónína Harpa
25. júní 2008 klukkan 13:34
Jónína Harpa Njálsdóttir 8 athugasemdir
Vegna mikillar pressu ákvað ég að blogga! ... Eða nei kannski ekki pressa. Meira svona láta vita af mér því aðmér finnst ég ekki vera í neinu einasta sambandi við umheiminn þessa dagana haha!Margt er að frétta og veit maður ekki hvar skal byrja.
Birkir er hér í sumar að arbejde og líkar mjög vel! Breiðdalsvík hvað..! Allavega, hann ákvað þá að byrja að leigja hér í bæ ásamt Andra, sin ven og svona uppá djókið ákvað ég að prófa það með þeim;) Sambúð gengur ágætlega þrátt fyrir að þessi íbúð gæti gert mig vangefna, eldhús og bað t.d mjög gamalt og illa frágengið og erfitt að gera það eitthvað kósý!!:/:/ Sjáum hvað þetta endist, ég á ennþá herbergi á Sæbakkanum
Kerlingin er byrjuð í álverinu! Við Rósa hörkutól ákváðum að prófa þetta uppá gamaniðJ Fyrst var okkur hent á námskeið sem var afar fræðandi og síðan var ungu dömunum skellt á VINNUVÉLANÁMSKEIÐ... Já það er ekkert djók skal ég segja ykkur! Bara snilldJ Ég viðurkenni reyndar fúslega að það var frekar erfitt að halda sér vakandi þegar það var verið að tala um vökvastýringu, tvígengis og fjórgengismótora og fleira fram eftir götunum frá 08 -18 hahaha! Við skelltum okkur á bíladaga um helgina og það var bara stuð, hitti Völlu, skellti mér í Sjallann og fleira sígilt svo það er fínasta helgi að bakiJ Ég veit að ég er ekki að standa mig í myndunum frá Marmaris( SEM VAR BTW AWSOME!!!!!!!!!!!!).. .Eeeeeen það mun koma! Hrafn er bara ennþá með myndirnar mínar og ég hitti aldrei á hann!
Ég vil biðja alla að kvitta, konur sem karla, aldna sem unga.... veriði sælJ
16. júní 2008 klukkan 16:02
Jónína Harpa Njálsdóttir 11 athugasemdir
Detti mér allar dauðar lýs úr höfði. Hvar er vorið? Lovflísa stórvinkona mín farin að blogga aftur, en bloggið hjá henni þar á undan var einmitt bloggað í síðustu prófum Svona á að gera þetta. Fyrsta prófið er afstaðið, gekk bara vel. Ef þið viljið að ég sálgreini ykkur bara ekki málið.
Ég vann veðmál í fyrradag... sem snérist um að ef ég myndi vinna pool leik yrði bílinn minn tjöruhreinsaður og bónaður hringinn í kring... Það þarf auðvitað ekki að ræða það að ég vann! Ég skellti mér bara í afmæli í gær til lille söster og hámaði í mig kökum og rjómaís á meðan menn voru sveittir að bóna bílinn, núna er kaggin stíf bónaður í bílastæðinu jájájá
Mynd af sætustu stelpum í heimi
Ef ég á að nenna að halda áfram að blogga vil ég almeinileg viðbrögð hérna!
Tjáááá, Nínsen Grímsen
02. maí 2008 klukkan 18:23
Jónína Harpa Njálsdóttir 10 athugasemdir